La petite morte
10.09.2007 18:19:04 / Halldra

Hæhæ:)

vá maður.. svaka helgi að baki og ég er enþá að jafna mig.. fór á djammið með vinnufélugum mínum í öryggismiðstöðinni og það var bara eitt besta djamm sem ég hef farið á lengi:) get ekki beðið eftir að fara aftur á eitthvað svona flipp, bara láta eins og fífl og hafa gaman að því:P

ég er nú ekki alveg nógu dugleg að halda þessari síðu við en ég er að reyna, sé það að það er enþá fólk sem kíkir á síðuna og ég met það, óheppin þið að ég blogga einu sinni í mánuði eða eitthvað, loksins þegar ég nenni því þá veit ég ekkert hvað ég á að skrifa.. shit..

en oki get þó allavegana sagt það að ég hangi ekki í tölvunni 24/7 eins og svo margir aðrir;)

heyrumst í næsta mánuði;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 00:38:45 / Halldra

hæhæ!!

ég byrjaði á mánudaginn í Álverinu í Straumsvík og það gengur bara vel.. ég er alveg búin að finna það út að ég er sterk, ekki endilega líkamlega, en andlega, ég lifi allt öðru lífi núna en á sunnudaginn, það er allt breytt eitthvernveginn. Ekki neitt á vondan hátt en maður er voða villtur eða eitthvað.. En þetta er allt að koma hjá mér, til dæmis að rata í stórborginni það verður bara betra og betra sem er ekkert nema æðislegt! En ég er samt bara sveitastelpan frá Ísafirði í vinnuni sko, það er fínt:P

það eru 2 stelpur í minni deild, sem er flutningadeild, ein er handboltafíkill og æfir með unglingaflokk og meistaraflokk FH í Hafnarfirði. Hin stelpan er nýbúin að útskrifast úr versló og æfir ballett 8 sinnum í viku. Ég þarf að fara að hreyfa mig, það eitt er víst, er að pæla í að kaupa mér mánaðarkort í sundlauginni í Kóparvogi því að rútan stoppar hinumegin við laugina þegar ég er að koma heim úr vinnunni, það er náttla alltaf fínt að kíkja í sund og svo smám saman þá mun ég synda lengra og lengra(samt eitt ekki alveg nógu gott, 50m laug). Fór um daginn með Bibbu og ég varð að synda ef hún ætlaði að gera það, aldrei að vera minni ''maður'', hún er náttla viðbeinsbrotin og tognuð í öxlinni. OK ég byrjaði að synda bringusund. Þegar ég kom á hinn bakkann var ég alveg búin en Bibba öskraði á mig að synda yfir og ég gerði það og ákvað að taka þetta bara á sprettinum (skriðsund) og þegar ég var komin hálfa leið þá hélt ég að ég væri að fara að deyja en ég hélt aðeins áfram, bara aðeins lengra, pínulítið.. En ég dó.. ég rétt ''skreið'' í bakkann og Bibba spurði bara: ''Hvað er að þér?'' ég gat ekki einu sinni svarað ég var svo móð.. en góðir hlutir gerast hægt og fall er fararheill:)

gæti skrifað endalaust meira en ég er að fá lánaða tölvuna hjá Jonna vin hans Braga í heimsókn, ég er bjáninn sem hengur í tölvunni núna:P

reyni að blogga oftar, see ya;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 23:53:36 / Halldra

STÓRAR FRÉTTIR

HEYHEYHEY!!

ég er að fara að flytja suður á sunnudaginn og ég byrja í nýju vinnunni minni á mánudaginn..

ég er að fara að vinna í Álverinu í Straumsvík..

Líf mitt er að breytast alveg gjörsamlega!

 

Ég mun búa hjá pabba til að byrja með og svo reynir maður að finna sér íbúð þegar ég er búin að safna mér pening.. váá.. ég er í svo miklu sjokki að ég veit ekki hvað ég er að hugsa lengur..

ég fékk bara símhringingu í gær á afmælinu mínu "hvenær viltu byrja?" Æðislegt en hryllilegt, búin að vera í stresskasti síðan..

ohh.. ég á eftir að sakna sumra hérna fyrir vestan, hann Sindri með þeim efstu á lista! Hann er náttla bara BESTI VINUR SEM HÆGT ER AÐ HUGSA SÉR! og ég hlakka til þegar hann drullar sér suður líka:)

en anyways.. ætlaði bara að láta þá fáu sem skoða enþá síðuna mína vita þetta og þið fyrir vestan á eftir að sakna ykkar og þig fyrir sunnan hlakka til að sjá ykkur:)

over and out;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 20:32:16 / Halldra

Halló

hvað segir fólkið? núna ertu páskarnir búnir(reyndar soldið síðan) og það var ekkert smá gaman:) ég og Bragi vorum ein heima hjá ömmu hans og afa, þau ákváðu að skreppa til Kanarí yfir páskana elskurnar:) anyways.. við vorum semsagt ein heima í svona 1dag eða svo, því að þá komu gestirnir.. minn yndislegi bróðir kíkti á okkur og svo komu Gunni og kærastan hans hún Sigga og með þeim hann Jonni og þau fengu að gista:) Ekki misskilja, það var ekki party en það var alveg geðveikt fjör, svona sumarbústaðastemning í gangi, við eitthvað að reyna að elda og þrífa eftir okkur sjálf og tókst bara ágætlega þó ég segi sjálf frá:) hehe..

en eins og allir vita þá var aldrei fór ég suður hátíðin haldin á ísafirði um páskana og við ákváðum að kíkja aðeins á þetta á föstudeginum og um leið og við mættum þá eru svona 10manns sem maður er ekki búin að sjá í mörg ár(liggur við) sem taka á móti manni með brosi og knúsi:) yndislegt. en við stoppuðum stutt, mesta lagi 20mín og þá voru gestirnir að pæla í að fara aftur útí vík þannig að auðvitað fórum við með þeim, hugsa vel um gestina okkar:)  svo á laugardeginum þá var ekki farið útúr húsi, allir alltof þreyttir eftir alla hina dagana:P þannig að við "misstum" af aðaldeginum en okkur var bara alveg sama því að við skemmtum okkur alveg nóg bara heima;)

en núna er ég ekki að nenna að skrifa eikkað meira þannig að ég sé ykkur þegar ég sé ykkur;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 18:11:46 / Halldra

Páskarnir á næsta leiti:)

djöfull hlakkar mig til!! get ekki beðið.. aldrei fór ég suður er eftir 2vikur og það verður ekkert smá fjör. Allir að koma vestur og njóta þess að vera til, ég ætla allavegana að gera það og ég er búin að sannfæra Braga um það að vera hér líka, þurfti reyndar að grátbiðja og skíta buxurnar duglega út á hnjánum enda úti..hehe.. en allavegana nenni þessu ekki lengur en ég hvet alla til að drulla sér vestur um páskana.

 það verður geggjað;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 16:35:08 / Halldra

Ellúú..

jahhá.. ég bara hafði ekki neinn tíma um jól og áramót til að vera eitthvað að blogga.. en það er svosem alveg í lagi.. því það er ekki eins og eitthver deyji ef ég er ekki búin að blogga, ekki svo margir sem lesa þetta hvortsem er..
allavegana.. ég fékk fullt af flottu dóti í jólagjöf, bara 2 mjúkir pakkar:) hehe..:P
ég fékk brauðgrill frá pabba sem þýðir náttla bara: "drífðu þig út frá mömmu gömlu" og ég fékk geðveikt glingur frá mínum elskulega bróðir og flottan jakka frá ömmu ásamt bókina fylgið okkur um syfjaspell, morð og sjálfsmorð. einnig fékk ég eitthverja bók um að setja sér markmið og ná þeim frá palla og co.. ég er með mína kenningu um það afhverju ég fékk hana, en annars fín gjöf..
svo fékk ég allskonar drasl, fyrir utan myndina sem mamma gaf mér, hún er æði! vatnslita mynd sem hún málaði fyrr á seinasta ári sem eru svona tré, bleikleit og appelsínugul og minnir mig alltaf geðveikt á kína.. það er svona þannig stíll á henni, geðveik!
áramót.. ein þau bestu sem ég hef upplifað! fór í áramótakvöldverð heima hjá pabba hans Braga, hitti þar pabba hans og fósturmömmu, 2 lítil systkin, ömmu og single frænkuna sem er ekkert feimin:P
það var geðveikt gaman:)
en ég nenni ekki að skrifa meira , ætla að fara að gera eitthvað sniðugt;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 01:02:28 / Halldra

jæja:P

núna er maður kominn suður, búin að opna pakka og éta fullt af góðum mat, lítið af nammi(pabbi er svo nískur á þetta) og skemmti mér bara vel á meðan.. er samt að fara í smá heimsókn núna, ákvað bara að segja hæ á meðan ég gat:)

á morgun hef ég kannski tíma til að ræna einni tölvu og blogga smá, ef ekki þá fuck it:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 22:18:43 / Halldra

Fuck..

shit.. what the fuck is happening to this world?
það er allt eitthvað svo að fara til fjandans í þessum heimi.. stríð útum allt, dauð börn allstaðar.. hungur, flóð, alnæmi, ólæknandi sjúkdómar, of litlir peningar í stofnunum og sjúkrahúsum, nauðganir, barnaperrar, ógeð eins og Guðmundur Jónsson, eiturlyfjafíklar útum allt, bílslys..ég get haldið endalaust áfram.. þetta er fucked up!
þetta ár er búið að vera versta ár sem ég hef lifað!
en samt með mörgum yndislegum stundum..
fyrsta útihátíðin mín..
fór með Braga suður og þaðan til akureyrar og tjaldaði og beið eftir bróður mínum og skemmti mér virkilega vel, 2 vikum seinna vorum ég og Bragi saman:) og erum enn.
ég er komin með góða vinnu, vel borgaða með yndislegu fólki:)
Aldrei liðið jafn vel og illa á sama tíma..
en svona er þetta víst og ekkert sem ég geri gæti breytt fortíðinni svo að ég horfi fram á veginn og hugsa..
næsta ár getur ekki orðið verra:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 18:39:53 / Halldra

What'up?

Aloha:)
Smá fréttir af mér..
verð fyrir sunnan hjá pabba um jólin.. á eftir að kaupa allar jólagjafirnar og ég veit ekkert hverjum ég á að gefa gjafir.. ætlar eitthver að gefa mér? ég veit að ég ætla að gefa Braga og náttla mömmu og pabba, afa og ömmu, bræðrum mínum og Þórdísi, Lísu, Sindra.. ég vona að ég þurfi ekki að gefa fleirum.. Eyddi 30.000kalli seinustu jól í gjafir og það ætla ég sko ekki að gera þetta ár! ekki séns!
ég verð hjá Braga um áramótin og hlakka bara ágætlega til.. er samt bara frekar stressuð fyrir allt jóla og áramótastuffið sem þarf að gera og að fara í allar þessar heimsóknir.. til Róberts og co, Palla og co. og hellingsfleira fólk að hitta.. vildi að ég gæti bara sofið að aðfangadag, étið góðan mat opnað pakka og sofa svo fram að áramótum og éta góðan mat, horfá skaupið, sprengja eitthvað og kíkja svo út þangað til ég sofna aftur og mæta svo úthvíld í vinnuna á 2.janúar..
talandi um vinnuna.. hellingur að gera, lítið af fólki, GLATAÐUR BOSS! Hann rak mig um daginn þetta helvítis fífl.. fékk vinnuna aftur sama dag en hann gerði það samt.. alger fáviti sem veit ekkert um starfsfólk sitt og mismunar því alveg feitast.. skil kannski að hann sé pirraður en hann átti ekkert að vera að taka það út á mér eins og eitthver andskotans hálfviti..
en mér líður samt alveg miklu betur í vinnuni eftir að hann rak mig því að ég gat loksins sagt honum alveg nákvæmlega hvað mér finnst um hann og fyrirtækið og allt sem því kemur:) og fékk samt vinnuna aftur!;)

en anywho ef þú ætlar að gefa mér gjöf, láttu mig þá vita svo ég gleymi þér ekki:P

later;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 19:23:17 / Halldra

Aloha;)

Hey ég blogga sjaldan en ég geri það samt alltaf á endanum:P ég kemst bara alltof sjaldan í tölvu.. ég held að ég sé eina manneskjan sem ég þekki sem er ekki með tölvu og netið.. meira að segja ein 9 frænka mín fékk eitt stykki geðveikt flotta apple fartölvu í jólagjöf.. en ég hugga mig við það að ég er þá ekki manneskjan sem hengur á netinu allan daginn:P og þegar ég kemst í tölvu hef ég alltaf eikkern helling að skoða og heng á eikkerum stupid leikjum á leikjanet.is :) ég veit ekki hvað það er en ég held að ég sé háð þessum leikjum.. ég er að hugsa um þá núna:$ hehe.. ætti kannski þá að skella mér í meðferð við því.. það hlýtur að vera hægt.. það er hægt að fara í meðferð fyrir öllu.. sem er kannski bara sniðugt;) en allavegana eins og kannski sést hef ég ekkert merkilegt að segja eins og vanalega en þetta er allt að koma hjá mér:P jú hey! ég er að fara suður á næstu helgi með Braga og við gistum hjá mömmu hans:) og ég hlakka svo til:) ég er að deyja út spenning;);)

endilega takið þátt í skoðanakönnuninni því að ég efast eitthvernvegin að það komi eitthvað nei..? nema mitt þá.. eða hvað?

heyrí ykkur vonandi fyrr en seinna;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 04:07:30 / Halldra

What' up;)

jæja.. eitthvernvegin held ég að það sem ég skrifa núna eigi ekki eftir að vera lesið af neinum því að það er svo geðveikt langt síðan ég skrifaði eitthvað..
anyways:)
kannski maður hendi einum brandara inní þetta uppá fönnið:P

What did the five fingers say to the face?
SLAP!

hehe..:P sá þetta í the chapelle show .. snilld.. :)
já en ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég ætti nú að skrifa hérna.. kannski hvað er að frétta af mér.. oki.. ég á kærasta núna:) ýkt happy eitthvað:) hann heitir Bragi og er úr Bolungarvík:) já ég er með víkara, ég er það nú líka;)
núna verður pabbi alveg ýkt ánægður eitthvað.. sjóari og alles:P
en nóg um það..
ég var að eignast lítinn frænda í gærnótt (9.september) klukkan 3 :) 16 merkur:) hún Anna Elín Hjálmarsdóttir frænka mín kom þessum í heiminn, hún stendur sig vel í því hlutverki að stækka við okkar æðislegu fjölskyldu, hvert það barn sem kemur í heiminn í þessa fjölskyldu mætti kalla heppnasta barn í heimi;)
bara takk fyrir mig þið öll ;*

og til hamingju til pabba míns, Ásgeir Elíasson haupatöffari:P vann 3þrautina í hérna fyrir vestan! spretti bara fram úr hinum gaurnum á seinustu metrunum.. kappinn!;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 21:55:01 / Halldra

vá.. ég þarf að fara að eignast tölvu..

eurovision.. váá.. þetta var ekkert smá:P ég missti af svona helmingnum af lögunum útaf því að ég var að vaska upp og so varð ég svo pissfull að ég man bara ekki eftir hinum helmingnum:S  en það var samt svo geðveikt gaman:D:D besta eurovision ever!! og sona p.s. Sandra ég elska þig;* þúrt æði!

en anyways.. eins og alltaf hef ég bara voða lítið að segja nema að mér hundleiðist hérna fyrir sunnan, er að pæla í að fá bílinn lánaðan og fara í heimsókn í hæðaselið til að hitta allar litlu frænkur mínar sem by the way eru allar að verða stærri en ég!! damn it! en það er nú bara flott að vera lítill, ég rek mig þó ekki uppundir eikkað á meðan;)

ég var hjá tannlækni í dag og núna er búið að gera við allar tennurnar mínar þannig að ég get gapað framan í hvern sem er með flottu tönnunum mínum;)

anyways ég er farin að finna mér eitthvað að gera:)

lov'ya all;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 18:03:59 / Halldra

hellúú..

jæja mörg ár síðan ég bloggaði seinast en fuck it..
það er komið sumar núna og ég á afmæli bráðum.. sona mánuður og eikkað í það:) átján ára .. það er ekkert annað.. loksins verður manni ekki hent út.. "klukkan er átta, Halldóra drullaðu þér út" en það er nú ekki það merkilegasta í lífinu:P
annars er bara allt gott að frétta af mér, ég er bara búin að vera að gera ekki neitt í heilllangan tíma en í dag fór ég í HG og sótti um vinnu aftur:D  of stjörnuspáin mín er alveg að virka fyrir mig þessa vikuna:) það sagði allavegana DV en ég meina hver trúir nú eitthverju sem stendur í því blaði, kannski verður þetta versta vika lífs míns(7,9,13) þá ætla ég að verða eins og versti bandaríkjamaður og kæra blaðið fyrir að hafa rangt fyrir sér, og þá fæ ég fullt af peningum og þá er alltílagi þó að ég fái ekki vinnuna strax, get bara chillað og beðið í rólegheitunum með vasana fulla af seðlum;) hljómar alveg ýkt vel, stefni á þetta:)
see ya;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 21:39:25 / Halldra

Svara takk;)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt?


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 19:05:04 / Halldra

Elsku Þórey

Elsku Þórey. í mínum augum varstu yndislegasta manneskja sem ég hef nokkurtíman hitt og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að þekkja þig, æfa með þér körfubolta, hangið með þér og Elisabeth og verið nærri þér því að þú gast alltaf fengið mann til að brosa. þú varst alltaf svo hlý og góð og stóst alltaf við bakið á manni. örugglega besti vinur sem hægt er að hugsa sér.
Rétt áður en mamma hringdi í mig og sagði mér þessar hörmungarfréttir var ég að segja kærastanum mínum frá því þegar við áttum að fá búninga í KFÍ (í svona sjöundasta skipti) og við vorum að velja hvað átti að standa aftan á þeim og við vorum alveg fastar á því stelpurnar að aftan á þínum ætti að standa "Angel". af því að það kom bara ekkert annað til greina, þú varst og ert engill í mínum augum og verður það alltaf og ég mun sakna þess svo að hitta ekki á þig fyrir utan stúdíóið eða þú að afgreiða mig í samkaup, hafðir alltaf eitthvað skemmtilegt að segja!
þú lifir í hjarta mínu að eilífu eins og allar minningarnar sem núna eru gylltar.
megir þú hvíla í friði og ég votta fjölskyldu þinni og öllum sem stóðu þér nær mína dýpstu samúð.

Halldóra.

minningarsíðan: http://fif.fi/torey/


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5